Leita í fréttum mbl.is

Hej allihopa!

Yes, nú er kominn tími til að blogga smá fyrir sænska vini mína, en ég hef vanrækt þá ansi lengi (ég veit, ótrúlegt að allir tali og lesi ekki íslensku!!!!!).  Skelli þó inn smá fréttum af mér á íslensku fyrst.  Well, ekki svo mikið nýtt nema ég er orðinn aðeins betri af kvefinu, fór upp á spító í morgun með þvagprufu því ég hafði pissað smá bleiku í gær.  Það var ekkert blóð í pissinu mínu, en líklega hafa þetta verið sölt og svona sem hefur komið með pissinu mínu og gert það svona bleikt.  Læknirinn minn hlustaði mig og sagði að hljóðið væri nú aðeins betra í lungunum mínum (yesssss!) og öllum fannst ég líta betur út en fyrir tveimur dögum síðan.  Mömmu fannst þvílík framför að ég hafi ekki þurft að leggjast inn í þetta skiptið og þó svo að við höfum þurft að fara uppeftir annan hvern dag síðan á fimmtudaginn þá er það ekki nærri því eins erfitt og að vera kannski í einangrun uppi á spító.  Ég verð samt heima frá leikskólanum þessa viku en vonandi kemst ég á leikskólann í næstu viku svo mamma geti nú unnið smá í rannsókninni sinni og komið henni af stað á næstunni.  Ég er semsagt allur að braggast og góða skapið mitt verður betra og betra með hverjum deginum, en ég er eins og mörg langveik börn - með gott skap og hætti ekkert að leika mér þó ég sé smá lasinn, þarf sko mikið til að ég hætti að vera í stuði.  Nóg af íslenskum fréttum í bili, smellum okkur í þær sænsku.

Hej alla mina svenska vänner!  Det är länge sen jag har skrivit något på svenska men nu har jag bestämt att vi måste skriva ett par linjer till er alla därute.  Jag har det relativt bra, det togs en krista (benmärgsprov) i december som skickades till Sverige (chimerismanalys) och det såg bra ut.  Till er som förstår det här med chimerism vill jag säga att alla CD-värden låg omkring eller under 1% egna celler, som är jättebra, eller hur!!!! Annars har det varit några tråkiga infektioner här i hösten och jag har varit inlagd tre gånger i november och decemberk både Calici och lunginfektioner.  Nu är jag sjuk igen, fick nog någon virusinfektion igen, mycket slem, hosta och utslag, men herregud det här är ju influensatid, inte sant!!  Annars går jag sakta men säkert upp i vikt (har gått ner lite nu på sistone men det er ok) men jag växer inte på längden, det kommer senare och det är ju inget som vi bekymrar oss för just nu.  Jag fyller fyra år i juli, så nu är jag 3 1/2 år gammal och några av er har jag faktiskt kännt i 3 år snart, konstigt va!  Hoppas ni har det bra allihopa, tusentals pussar och kramar från Island.

Med svenskisländska hälsningar,

Benjamín Nökkvi The Multilingual Guy


Smá bloggfærsla

Hnelló, jamm hér erum við nefmælt big time, en bæði ég og mamma erum með kvef.  Ég fór upp á bráða í gær, mettaði 92-93%, heljarmikið slím í lungum, útbrot á maga og baki, og var ég sendur í lungnamynd og tekið CRP til að athuga hvort það væri hækkað hjá mér (kallað sökk í gamla daga og gert til að athuga hvort möguleg sýking sé í kroppnum).  Myndin leit ágætlega út og CRP-ið var 32 (á að vera undir 10) en líklega eru útbrotin svona vírusútbrot.  Ég fékk svo að fara heim en var smá tuskulegur í gær og rauk upp í 39 stiga hita í nótt, andaði hratt og mikið en svaraði hitalækkandi mixtúrunni vel og lækkaði hitinn fljótlega eftir að ég fékk hana.  Í dag er ég búinn að hósta mikið og horið lekur í stríðum straumum, ég er hrikalega rauður í kringum munninn og með eins og sár á tungunni, og litli krúsurassinn minn er eldrauður og aumur (eins og brenndur á rassinum en samt er ég nú hættur með bleyju sko!).  Anyways, þá er ég eiginlega sofnaður núna og mamma er með stútfullan heila af hori þannig að skrifin verða ekki lengri í þetta skiptið.  Ætlum að hringja upp á spító í fyrramálið ef ég verð ekki betri.

Með lazarusarkveðju,

Benjamín Nökkvi Slími


TJÚÚÚHHÚÚÚ!

Jamm, segi það og skrifa það - TJÚÚÚHHHÚÚÚ! - heyrði í Svíunum í dag og það voru góðar fréttir.  Byrjum á byrjuninni - ég fór í blóðprufu í gærmorgun og hún kom ansi vel út (krabbameinslega séð!), ég var aðeins hækkaður í hvítum en rétt hlutfall var þó milli hvítra og bardagafrumna sem er gott.  Ástæðan fyrir hækkuninni á hvítu blóðkornunum er að öllum líkindun sú að ég er eitthvað að kvefast (ég veit, aftur og nýbúinn!!) og mettaði ég ekkert frábærlega í gær (93-94) en alveg þokkalega, og mikið hor var í nös og slím í lungum.  Kannski er ég með RS-vírus en það virðist vera í tísku þessa dagana, og tók læknirinn minn "horsýni" til að senda í ræktun en niðurstöðurnar eru ekki enn komnar.  Ég fékk smá aukastera og slógu þeir vel á, það vel að mamma hélt að ég væri bara alveg orðinn góður í morgun þar sem ég hafði lítið hor og nánast engann hósta, eeeen, þegar líða tók á hádegi í dag fór mér aftur að versna en við fylgjumst bara vel með ástandinu og hringjum bara uppeftir (á spító) ef okkur finnst ástæða til.  Allavega, mamma er orðin leið á að bíða eftir niðurstöðunum í tengslum við Chimerismann (beinmergssýnið sem sent var til Svíþjóðar í greiningu) og hringdi hún bara út í morgunn og um hádegið hringdi læknir að utan í mömmu og lét hana hafa niðurstöðurnar úr sýninu.  Það var FLOTT, en ég var um og undir 1% í eigin frumum í öllum fjórum flokkum sem greindir eru (CD19, CD3, CD33, CD34) en það er lægra en síðast og mikilvægast af öllu - MJÖG GOTT fyrir mig!!!!  Þannig að, góðar fréttir af mér í dag (fyrir utan smá kvef, en hey, það er ekkert!)!  Nú er ég orðinn lúinn og ætla að fara í lúrinn - kannski get ég heimsótt yndislega vinkonu mína á næstu dögum þegar ég verð orðinn frískur.  Ég má nefnilega ekki smita hana því hún er veik eins og ég hef verið.

Með smápirringskveðju,

Benjamín Nökkvi Horari


Eitthvað óákveðinn þessa dagana!

Sælar elskurnar, eins og sumir kannski sjá er ég að máta nýtt útlit á síðuna mína og er fremur óákveðinn þannig að ég skipti um útlit eins og sumir um nærrur (veit, undarlegt orð sem móðir mín notar yfir nærbuxur, en mömmu finnst mjög gaman að fullnægja sköpunarþörfinni með því að búa til allskonar undarleg nýyrði Blush).  Well oh well, vonandi finnum við eitthvað útúr þessu með útlit síðunnar annars þarf maður nú kannski ekkert endilega að festa sig í sama útlitinu.  "Fjölbreytni og nýjungar" eru einkunnarorð mömmu, en pabbi er nokkuð sáttur á meðan hún breytir reglulega um aksturleiðir, snýr öllu við heima með jöfnu millibili, spreytir sig á nýjum matarréttum, osfrv., hann segir nefnilega að á meðan hún gerir það þá skiptir hún allavega ekki honum út (hí, hí, hí)!  Ég fór á Heyrna- og Talmeinastöðina í dag, en þekkt er að krabbameinslyf geti haft áhrif á heyrnina hjá börnum.  Ástæðan fyrir að ég fór var ekki sú að mömmu og pabba grunaði að mig heyrði illa, heldur þoli ég mjög illa ákveðin hljóð t.d. þegar verið er að láta renna í bað og svoleiðis "þung" hljóð.  Eftir heyrnamælinguna og eyrnaskoðun var niðurstaðan sú að eyrun mín virka fínt og líklegra er að ég hafi, af einhverjum ástæðum, þróað með mér einhverja næmni fyrir þessum ákveðnu hljóðum og þurfum við bara að vinna markvisst með að láta mig venjast þeim.  Eyrum semsagt flott!  Annars er ég að byrja að kvefast aftur, en eins og Teklan mín sagði við mömmu þá eru eiginlega allir hnerrandi í leikskólanum!  Jæja, nú vil ég sko fá samlokuna mína sem ég er búinn að biðja um í hálftíma!!!

Með Súpereyrnakveðju,

Benjamín Nökkvi Eyrnastór


Til leiðréttingar ef einhver misskilingur er farinn af stað!

Hæ hó öll sömul, mig langaði að láta vita að ég er enn frískur og hvítblæðið hefur ekki enn tekið sig upp aftur, en mamma heyrði af því að einhver misskilningur virðist vera á ferð um að hvítblæðið sé komið á kreik á ný.  Svo er ekki, allavega ekki svo við vitum um, en ég fór síðast í blóðprufu fyrir tæplega hálfum mánuði og ekki var neitt ljótt að sjá í þeirri prufu og ekki er neitt sem bendir til að neitt neikvætt sé að gerast í kroppnum mínum.  Við vitum ekki alveg hvernig þessi misskilningur fór af stað eða hversu útbreiddur hann er, en þetta er semsagt ekki rétt og við biðjum þess að hvítblæðið muni aldrei þora að láta sjá sig í mínum kroppi aftur ("þú skalt ekki voga þér að koma nærri mér aftur!" Angry).  Að sjálfsögðu óskum við engum þess að þurfa að kljást við krabbamein af neinu tagi og heitasta ósk okkar er sú að engir svona "vibbasjúkdómar" væru til, en raunveruleikinn er því miður annar.  Eins skrítið og það kann að hljoma hefur þessi lífsreynsla þó haft margt jákvætt í för með sér (eins og ég hef oft sagt áður) en ég held nú samt að ef manni væri gert að velja hvort maður vildi þessa lífsreynslu eða ekki, myndu nú flestir samt afþakka! 

Með leiðréttingarkveðju,

Benjamín Nökkvi 1ár7mánuðirog8dagarfráseinnimergskiptum 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hinn íslenski súpermann!

Benjamín Nökkvi Björnsson
Benjamín Nökkvi Björnsson
Alvöru ofurhetja sem komist hefur í gegnum tvenn beinmergsskipti með hjálp einstakrar ástar á lífinu!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband