Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

YESSS, GÓÐAR FRÉTTIR!!!!!

Ætla að skella inn smá línu og deila með ykkur góðum fréttum, kannski ekkert sérstakar þannig en fyrir mömmu og pabba eru þær þvílíkur léttir.  Ég var í blóðprufu í morgun og var að fá niðurstöðurnar og þær eru flottar!!  Ekki að það hafi verið neitt sem benti til að fja..... hvítblæðið væri farið af stað aftur en veikindi mín síðast gerðu að mamma og pabbi voru að fara á límingunum um að eitthvað meira væri að.  Það er svo merkilegt hvernig hugurinn vinnur vegna þess að þó svo að allt þjóðfélagið lægi í flensu og fólk var hundlasið þá voru einkenni hjá mér sem mamma og pabbi voru svo hrædd um að gætu verið eitthvað annað en flensan.  Hér erum við að tala um lækkaðar blóðflögur (hrynja yfirleitt við veikindi, allavega hjá mér, en gætu þýtt að hvítblæðið væri farið af stað), lækkun í hemoglóbínu (sama of með flögurnar, en gæti einmitt líka þýtt eitthvað skelfilegt), gríðarleg þreyta og slappleiki (enn og aftur sama, og mér skilst að þeir sem hafa fengið þessa flensu hafi legið dögum saman í rúminu vegna slappleika), minnkuð matarlyst (sama aftur), og verkir í fótum (líklega bara beinverkir sem oft fylgir flensu, en gæti þýtt að......).  Pjúff, miðað við þessi einkenni finnst mörgum kannski ekki skrítið að mamma og pabbi voru hrædd þrátt fyrir að berjast við þessar neikvæðu hugsanir og reyna að vera skynsöm og hugsa að þetta væri bara flensan.  Það er nú bara þannig að þrátt fyrir að vera rökhugsandi verur þá erum við líka tilfinningaverur, og hræðslan við hvítblæði er svo yfirþyrmandi tilfinning að hún yfirgnæfir rökhugsunina BIG TIME!!!!  Mamma og pabbi eru semsagt svo létt yfir niðurstöðunum að ég held svei mér þá að þeim langi að kasta sér í gólfið og gráta af létti!

Með léttri kveðju,

Benjamín Nökkvi súperhetja frá Súper


Matarlystin komin aftur!

Hæ krúsulúsur,

kominn tími til að láta vita af sér aðeins.  Ég er orðinn frískur og sprækur og fór í leikskólann á miðvikudaginn (öskudagur), var sko náttfataball og við fórum í íþróttahúsið í skólanum og slógum köttinn úr tunnunni - ótrúlega mikið stuðpartý!!  Ég hef ekki þurft að nota súrefnið í 5 nætur og metta bara nokkuð vel, svona 94-95 þegar ég er vakandi, sem sumum finnst kannski ekki mikið en það er ágætt fyrir mig.  Mamma fór með mig upp á spító á mánudagsmorguninn til að láta hlusta mig og var hljóðið í lungunum svipað og það hefur verið síðan í haust.  Krúttlæknirinn minn var svakalega hugsi á svipinn og velti upp við mömmu ýmsum ástæðum sem gætu verið orsökin fyrir þessu lungnaveseni.  Hugsanlega verður settur inn einhver lungnalæknir sem getur hjálpað til með að fá betri botn í lungun mín - læknarnir hér heima eru nefnilega svo flottir, þeir vinna svo vel saman og nýta sér sérþekkingu hvors annars, en svíarnir virðast stundum pínu feimnir við það, láta stundum eins og þeir séu með sérþekkingu á öllu.  Ég er sko ekki að gefa frat í frábæru læknana mína í Svíþjóð en við fundum fyrir því að þeir voru tregari að leita sér aðstoðar hjá "kollegum" sínum, eins og það sé einhver yfirlýsing um vanhæfni þess læknis sem leitar sér ráða, nei, okkur finnst það sko vera merki um þroska og öryggi þeirra lækna sem viðurkenna að þeir eru ekki sérfræðingar á öllum sviðum (jamm, mamma, nú ertu búin að koma því til skila, má ég þá taka við aftur?!).  Meðan ég var lasinn um daginn hafði ég sko enga matarlyst og grenntist aðeins aftur (ekki eins og ég megi við því!), en síðustu daga hefur matarlystin verið að koma tilbaka og í morgun vaknaði ég og heimtaði að fara niður til að fá eitthvað að borða þrátt fyrir að ég væri búin að fá næringu í gegnum slönguna í alla nótt.  Það sem er frekar merkilegt við það er að næringarpokinn minn inniheldur 500 hitaeiningar (sem er nú þokkalegt fyrir svona lítinn putta eins og mig), og ég kláraði pokann ekki fyrr en um 7 í morgun, vaknaði kl.7.30 og vildi maaaat!  Fékk mér sko bæði Cheerios og kókópöffs og smá kóksopa með (jamm, veit að flestir foreldrar myndu ekki leyfa það en mamma og pabbi hafa svo lengi horft upp á að ég borða ekki eða drekk, þannig að þau þurfa smá tíma til að skrúfa fyrir kókið en eru samt farin að gera það mér til mikillar óánægjuAngry).  Ég fer í blóðprufu á morgun, alltaf sami kvíðinn sem fylgir því, en pínu titringur hefur verið undanfarið hjá mömmu og pabba þar sem mars er að nálgast en þá eru tvö ár síðan ég greindist aftur og það er þeim erfitt.  Ætla að smella mér í bílaleik og smjatta á smá meira cheeriopöffs!

Með kjamskveðju,

Benjamín Nökkvi sælkeragarmur


Súrefnisþjónustan, ætli það sé ehf?

Bleeeesuð öll!  Pjúff, þetta kvef eða flensa eða hvað þetta nú er, er búið að vera frekar þreytandi síðustu viku.  Við mamma bæði lasin, en sem betur fer enginn annar í fjölskyldunni, allavega ekki enn!  Ónæmiskerfið hennar mömmu gömlu er búið að vera  í lamassessi síðan í byrjun árs en hún hefur, eins og ég, gripið allskonar kvef og vibba.  Held hún sé eitthvað lúin sú gamla!  Anyways, þá var ég farinn að metta enn verr um miðja viku (88-90 þegar ég var vakandi) og mömmu fannst ég sofa svo svakalega fast þegar ég sofnaði og erfitt var að vekja mig.  Mamma er orðin sjóuð í allskonar einkennum þannig að hún fór að pæla í hvort þessi ofursvefn gæti ekki eitthvað tentgst súrefnismettuninni, en allir detta niður í mettun þegar þeir sofa þannig að ég hef líklega orðið það lágur að ég átti erfitt með að vakna.  Sterarnir voru hækkaðir aðeins, ég var settur á Tamiflu (nei, ég er ekki með fuglaflensu!!) og súrefnisþjónustan kom til okkar með súrefnisvél á fimmtudaginn.  Við erum samt bara með kveikt á henni á nóttunni því þá þarf ég mest á súrefnishjálp að halda.  Ég er farinn að metta betur (93-94 í vöku í dag) sem er gott og ég er allur hressari.  Ég er samt svolítið slappur ennþá og hef litla matarlyst en mamma og pabbi eru dugleg að gefa mér næringu í hnappinn minn.  Vonandi kemst ég í leikskólann á mánudaginn, orðinn nett leiður á að hanga heima síðustu mánuði!!!  Eitt er pínu skrítið, ég er farinn að labba á tánum!  Mamma er að reyna að fá mig til að segja sér hvort mér sé illt í fótunum en ég segi bara "æi, mér er ekkert illt, vill bara labba svona!".  Ef einhver hefur hugmynd um hvað þetta gæti verið þá má sá hinn sami láta okkur vita - skiljum þetta ekki alveg!

Með oxygenkveðju,

Benjamín Nökkvi Ballettdansari


BWAHHHH, KVEF ENN OG AFTUR!!!

Well oh well, þá er kvefpúkinn kominn aftur!  Vaknaði um eitt í nótt og þurfti að pissa, komst ekki framúr en mamma fann að ég var brennandi heitur, mældi mig og ég var með 40 stiga hita.  Ég andaði svakalega hratt og púlsinn var mjög hraður (hitinn) og leið hreint ekki vel.  Mamma gaf mér hitalækkandi en það virtist ekki duga til því eftir klukkutíma var ég enn með 39,8, þannig að hún hringdi upp á bráða (again and again!) og vildi láta kíkja á mig.  Það er nú einusinni þannig að með mína sögu á bakinu þá finnst foreldrum mínum ekki skynsamlegt að taka neina sénsa, við förum sko frekar 100 sinnum of oft en einu sinni of sjaldan upp á spító.  Kannski finnst sumum það asnalegt en enn hefur ekki komið að því að mamma hafi vitlaust fyrir sér, þ.e. þegar við förum upp á spító þá er ég lasinn og þá er betra að láta kíkja á mig enn að sitja heima með hjartað í buxunum af kvíða um hvað sé að hrjá mig.  Ég mettaði sæmilega (92-93), púlsinn var hraður, en hitinn var sem betur fer á niðurleið, það voru teknar blóðprufur (mamma var gjörsamlega að fríka út af kvíða um að prufurnar myndu sýna eitthvað ljótt - ekki það að henni fyndist raunsætt að hvítblæðið væri búið að taka sig upp en lítið annað skýrði þennan hita).  Blóðprufurnar voru ágætar, lækkun í blóðflögum, smá hækkun í hvítum, "bardagafrumurnar" hlutfallslega háar, en allt þetta bendir til að einhver vírus sé að hrella mig - kannski blessaða flensan sem tröllríður öllu þessa dagana.  Við fengum allavega að fara heim aftur og sofnaði ég fljótlega eftir að við komum heim (04.30!) en mamma náði ekki að gíra sig niður og svaf því lítið sem ekkert, en svona er þetta bara.  Málið er að kvíðinn, sem fær að blómstra í hvert skipti sem ég fæ háan hita og verð lasinn, verður mjög yfirþyrmandi og sendir foreldra mína tilbaka til þess tíma þegar ég var veikur og það verður ekkert auðveldari með tímanum (allavega ekki ennþá!).  Ég er semsagt heima í dag og við mamma erum að horfa á Svamp Sveinsson, en ég er furðanlega hress miðað við ástandið (en ekki hvað!).

Með enneinusinnikvefkveðju,

Benjamín Nökkvi Súperkrútt 


Halló, halló, halló!

Good God hvað það er langt síðan ég skrifaði síðast!  Málið er nú það að ég hef farið á leikskólann alla vikuna (loksins!) og mamma er búin að vera uppi á Þjóðarbókhlöðu að vinna, þannig að á meðan ég þarf að treysta á mömmu að skrifa verð ég víst að sætta mig við að hún tekur svona vinnutarnir og sinnir þá ekki skrifunum mínum á meðanCrying  Nei, nei, mamma mín, allt í góðu bara, bara standa sig betur í framtíðinni!  Anyways, þá líður mér loksins betur, þetta leiðindakvef varð ansi krassandi á tímabili og húðin mín var svo viðkvæm sumstaðar að ég flagnaði allhrikalega á stórum svæðum.  Það hryglir aðeins í hægra lunganu ennþá en ég er að fara í blóðprufu á mánudaginn og vonadi verður "hlustunin" þá miklu betri en síðast.  Guð, haldiði ekki að ég sé orðinn baðsjúkur - gæinn sem hataði að fara í bað og mikið basl var að koma mér í baðið!!  Heimta sko að fara í bað núna minnst einu sinni á dag og helst myndi ég vilja fara mörgum sinnum yfir daginn!  Jamm, lífið getur verið fljótt að breytast, ha!  Well oh well, læt heyra frá mér á næstu dögum eða allavega eftir að ég er búinn í blóðprufunni.  Æi, gleymdi aðeins - þið munið kannski að Nikulás stóribróðir fékk svona hársjúkdóm (Alopecia Areata) og fór að missa hárið, en nú er hann kominn með leiðindarútbrot í andlitið og enginn skilur neitt í neinu.  Má ég biðja ykkur um að hugsa líka fallega til hans og Teklunnar minnar eins og þið hafið gert til mín, þau hafa þurft að lifa við svo erfiðar aðstæður í svo laaaaangan tíma að þau eiga sko skilið að líða vel og ekki líka lenda í einhverjum leiðindarveikindum.

Með smásorgíhjartaútafþvíaðsystkinummínumlíðurstundumillakveðju, b

Benjamín Nökkvi Hinn Blíði 


Hinn íslenski súpermann!

Benjamín Nökkvi Björnsson
Benjamín Nökkvi Björnsson
Alvöru ofurhetja sem komist hefur í gegnum tvenn beinmergsskipti með hjálp einstakrar ástar á lífinu!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband