Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Með ósk um gleðileg jól og farsæld á komandi ári ykkur öllum til handa

Kæru vinir og vandamenn, okkar bestu jólaóskir um hamingju og heilbrigði á nýju áriHalo.  Við fengum að fara heim í gær, frábært að sofa í mínu (mömmu og pabba) rúmi, mmmmmm.  Var orðinn rosalega fölur seinnipartinn í gær og þau gömlu alveg að fara á límingunum, drógu reglulega úr hnappnum mínum en til allrar hamingju kom ekkert blóð.  Ég var farinn að segja við mömmu í hvert sinn sem hún dró "hvað kemur mamma, blóð?", þegar mamma sagði "nei" þá sagði ég "gott, ég nenni ekki að fara aftur á spítlann, þá get ég sko ekkert opnað pakkana mína og þá opna Hrafnhildur og Nikulás þá baraShocking".  Mamma og pabbi sváfu þokkalega í nótt, en eftir að þau komu uppí þá rumskaði ég, bað um mjólk (sem ég fékk), þambaði hana, lagðist á koddan og sagði "þetta var góður dagur"Halo - bara krúttlegt fannst mömmu og pabba.  Nú ætlum við að hætta þessu í bili þar sem líða fer að matarundirbúning.

Með alheimskærleikskveðju,

Benjamín Nökkvi Með Þakklæti í Hjarta yfir að fá að Koma Heim um Jólin


Þið hljótið að vera að grínast!!

Nú er þetta sko hætt að vera fyndið - ekki það að það hafi nokkurn tíma verið það en mamma tekur oft svona til orða!  Mamma skellti sér í vinnuna í gær (beint af barnaspítalanum) og pabbi var hjá mér og ég var útskrifaður um hádegið.  Ég varð nú eitthvað fölur og fár á leiðinni heim í bílnum, svitnaði allur, en pabba datt helst í hug að ég hefði orðið bílveikur því ekki datt neinum í hug að það myndi blæða hjá mér aftur.  Amma kom svo að passa mig á meðan pabbi fór með Teklu og Nikulás upp á spító til að hitta Audda og Sveppa - en þeir voru að skemmta á leikstofunni - mamma kom svo við að hitta okkur en hún var í smá pásu úr vinnunni þar sem hún átti að taka á móti rannsóknarstyrk kl.15, pabbi brunaði svo heim til mín eftir skemmtunina og þá var amma að skeina mér og það var blóð í kúknum mínum.  Pabbi dró þá úr hnappnum mínum og enn og aftur kom blóð - við brunuðum uppeftir og vorum komnir kl. hálffjögur - semsagt innan við 4 tíma frí frá spító!  Mamma kveikti á símanum strax eftir afhendinguna og sá þá að pabbi hafði hringt og ætlaði varla að trúa því að ég væri kominn uppeftir aftur!  Pabbi róaði hana þó og mamma fór aftur í vinnuna til að klára síðustu viðtöl dagsins.  Þegar mamma kom upp á spítala var nýbúið að blæða ansi hressilega, en pabbi og vinkonuhjúkkan mín höfðu dregið um 50 ml. af blóði út hnappnum mínum og svo hafði ég kúkað miklum blóðkúk.  Ég hafði lækkað ansi mikið í hemóglóbíni eða úr 119 í 92 þannig að ég hafði misst töluvert blóð enda var ég svo hvítur þegar mamma kom að henni brá bara!  Ég var nú samt reytandi af mér brandarana og söng með Bubba byggir laginu og var í frekar mikið stuði sko, en ekki hvað!!  Ég var ekki alveg jafn kátur þegar þurfti að setja upp aðra nál fyrir blóðið mitt, en það hafði ekki gengið neitt sérstaklega vel að setja upp fyrri nálina (fyrir lyfið mitt) og er ég því orðinn allur útstunginn.  Viðar læknir kom og auðvitað tókst honum (eins og fyrri daginn) að skella í mig nál með léttum leik (hann svitnaði bara smáWink).  Ég fékk því blóð í annan handlegginn og Sandostatin í hinn og gat því mest lítið notað hendurnar mínar.  Lúther kom að sjálfsögðu að kíkja á mig og var ákveðið að spegla mig strax í morgun nema ef eitthvað færi að blæða aftur þá ætti að gera það strax.  Ég hélt að sjálfsögðu kúlinu og blæddi ekki meir um nóttina, en þegar ég vaknaði í morgun var nálin í öðrum handleggnum (þar sem lyfið mitt var að renna) orðin eitthvað skrítin og handleggurinn minn og hendin frekar bólgin og stíf/ur, þannig að það varð að færa lyfið yfir í hinn handlegginna og svo var bara sett upp ný nál á meðan ég var í svæfingunni.  Ég leyfði mér nú að sofa vel eftir aðgerðina, en Lúther lokaði einhverjum æðum aftur, og þegar ég loks vaknaði um 14 var ég orðinn glorsoltinnn (enda verið fastandi síðan um kl.20 í gær) og fékk mér tvær samlokur og mjólkurglas - úff, hvað það var gott að fá eitthvað í bumbuna.  Við erum að hugsa um að toppa veru okkar á Barnaspítalanum og fara ekki heim fyrr en á Þorláksmessu (fórum heim 22 des í fyrra), en hey, jólin koma sko fyrir því og við fáum vonandi að vera bara öll saman heima, borða góðan mat (sem verður með einfaldara sniði í ár), ooooog opna pakkana (júúúhúú, ég hlakka sko til!!).

Með Allt er þegar þrennt er kveðju,

Benjamín Nökkvi Blóðbankaþegi


Jólin eru að koma.....

Hæ hó krúttkökur!  Ætla aðeins að láta vita af mér, en ég þurfti að fara aftur upp á spító í gærkvöldi.  Stundum getur verið gott að vera með kvíða þegar ástandið er óöruggt, því kvíðinn hennar mömmu fyrir að mér myndi fara að blæða aftur kom kannski í veg fyrir að ég kastaði upp blóði aftur og missti eins mikið blóð og um daginn.  Mamma og pabbi voru búin að koma sér fyrir í sófanum með ís og alles, og ætluðu að kíkja á þátt í sjónvarpinu - grísirnir 3 sofnaðir - en mamma ákvað nú að draga úr sondunni minni til að tékka hvort nokkuð væri að blæða (eitthvað sem hún hefur gert reglulega þegar blætt hefur hjá mér).  Með því að setja slöngu í hnappinn minn á maganum er hægt að athuga hvort eitthvað sé í gangi í bumbunni minni, og í gærkvöldi kom semsagt aftur blóð.  Bömmer, bömmer, en ekki var nú hringt á sjúkrabíl núna heldur hringdu mamma og pabbi í ömmu sem kom og passaði krakkana og við brunuðum niður á spító.  Margir snillingar tóku á móti mér, sett var upp nál, sandostatin blandað (lyfið sem stoppar blæðingar), hringt í Lúther og plan sett upp ef skyndiblæðing skyldi fara af stað - gjörgæsla, akút speglun, og blóðgjöf.  Sem betur fór varð engin skyndiblæðing (7,9,13) og ég var sko í stuði til kl.04 í nótt, át 2 brauðsneiðar, svo kornfleks og mjólk, nammi, namm.  Síðan fékk ég hressilega í magann og kúkaði ansi miklum blóðkúk en sofnaði loksins en vaknaði frekar hress í morgun.  Mamma var ekki eins hress, frekar úldin bara!  Það var ákveðið að taka blóð úr mér aftur og athuga hvernig blóðgildin mín voru, en í nótt var ég um 100 í hemó og vildu læknarnir mínir gefa mér blóð.  Þar sem ég hafði nánast ekkert lækkað frá því í nótt var þó ákveðið að bíða með blóðgjöfina þar til Sandostatinið væri búið að renna inn (einhverntíma á morgun) því annars hefði þurft að setja upp aðra nál hjá mér og það er nú ekki eins og mér finnist neitt sérstaklega gaman að hafa nálar í báðum handleggjum, fyrir utan að það er ekki það auðveldasta í heimi að setja upp nálar í krumpuðu æðarnar mínaShocking.  Ég er nú samt búinn að vera í dúndurstuði í dag (en ekki hvað!), lagði mig aðeins seinnipartinn og er því enn vakandi (klukkan að verða 00 - miðnætti sko) og sú gamla alveg að leka niður af þreytu.  Ég fæ nú vonandi að fara heim á morgun og svo verðum við bara að sjá til hvernig verður með allar speglanir og "bumbuviðgerðir".

Með spítalaaðventukveðju,

Benjamín Nökkvi sem heldur í Desemberhefðir (að vera uppi á Barnaspítala, sko!!)


Well oh Well!

Hæææææ, erum smá svekkt samt ekkert mega drama í gangi.  Málið er að mamma og pabbi voru að spjalla um það fyrir nokkrum dögum að ég og mamma höfum alltaf verið eitthvað inniliggjandi á spítala í desember og stundum (eins og í fyrra) komist heim rétt fyrir jólin.  Þessar umræður mömmu og pabba byrjuðu á því að mömmu fannst hún ekkert vera komin í jólastuð fyrir nokkru síðan og þá minnti pabbi hana á að það væri kannski ekki skrítið þar sem desember hefur oft verið spítalamánuður (mismunandi mikið sem betur fer), en samt hefur það haft þau áhrif að jólafílingurinn stendur svolítið á sér þegar maður nær ekki að skreyta eða baka nema á hlaupum og stundum hefur pabbi og ömmurnar sko staðið alveg fyrir því (sem er auðvitað frábært!).  Anyway, þá voru mamma og pabbi nokkuð viss um að þetta yrðu fyrstu jólin þar sem ég yrði ekkert inniliggjandi í desember og vorum við sko öll komin í jólastuðHalo  Í gær var svo mamma að fara með mig til næringarráðgjafa, til að athuga hvort það sé einhver matur sem henti mér betur en annar og svoleiðis (til að reyna að fita mig sko! - alltaf verið að vinna í því, bara ekkert slakað á í þessum málum!!).  Allavega þá var ég sem betur fer ekki farið í leikskólann því ég hefði nú ekki boðið í áfallið sem ljúfu konurnar mínar á leikskólanum hefðu fengið ef þær hefðu lent í því sem gerðist (ekki það að ég hef sko alveg trú á að þær hefðu nú alveg höndlað þetta, en ég er samt feginn að þær þurftu þess ekki).  Rétt áður en við mamma fórum af stað fór ég að kvarta um að mér væri illt í maganum og benti mömmu á stað sem setti viðvörunarbjöllur af stað hjá mömmu, svo varð ég svaka fölur og slappur og sagðist þurfa að gubba - mamma fattaði hvað klukkan sló en neitaði að trúa því innra með sér - þetta átti ekkert að eiga sér stað núna!!!  Allavega skakklappaðist ég á klósettið og byrjaði að kúgast en ekkert kom, mömmu var alveg komin með hnút í magann, svo allt í einu stóð blóðgusan út úr mér (samt ofan í klósettið, svo yndislega mikill snyrtipinniHeart).  Mamma hentist og náði í símann og hringdi í 112, náði svo í einhverju fáti að henda einhverjum fötum í bakpokann sinn, klæddi mig í kuldaskó, flíspeysu og úlpu, og fannst tíminn óendanlegur þangað til sjúkrabíllinn kom.  Ég skildi nú ekki allt þetta vesen og sagði mömmu að mér liði nú aðeins betur,  spurði síðan "mamma, afhverju var þetta svona rautt gubb!" - já, slakur er ég, hafði nú ekkert sérstaklegar áhyggjur af þessu.  Ég var nú samt fölur eins og nár og slappur, en hélt meðvitund alla leið upp á spítala þar sem Sigrún hjúkkan mín tók á móti mér (mamma hafði náð að hringja í hana og láta vita að við værum að koma) - gott að sjá Sigrúnu mína (það fannst okkur mömmu báðum).  Mamma var svona í nettu áfalli, hjúkkurnar skelltu í hana djús þar sem hún var ekki minn föl en ég, en svo jafnaði hún sig þegar allir snillingarnir voru búnir að taka aðstæðurnar í sínar hendur.  Var skellt í mig tveimur nálum, ein fyrir lyf og ein fyrir vökva og blóðgjöf (en ég var kominn niður í 84 í hemóglóbíni).  Lúther snilli ákvað að spegla mig í flýti, en fyrst fór ég upp á gjörgæslu og var þar þangað til ég fór í speglunina nokkrum klukkutímum seinna.  Það sáust tveir staðir þar sem hafði blætt (gömlu æðagúlarnir eða þar í kring) - hann ætlaði að setja teygjur utan um gúlana en enn og aftur tókst það ekki og það er sko ekki af því að hann er ekki snjall, neibb, ég er með svo þröngt kok að það var ekki séns að koma speglunartækinu með teygjunni niður, þannig að þetta var bara gert á gamla mátann (eins og áður hjá mér), eitthvað með nál og eitur (drepnar götóttu æðarnar) - þurfum ekkert að vita meir um það!  Ég svaf lengi, lengi, sem er óvanalegt fyrir mig, en hey, akútblæðing, aðgerð, og hressilegur lyfjakokteill hefur nú sín áhrif á sterkustu menn. Ég fékk svo að fara upp á deildina mína (22-E) í gærkvöldi og var ég glaður með það.  Búinn að kúka ansi miklum "blóðkúk", sem er svona afgangur af blóðinu sem fór niður í þarma, en er annars ansi sprækur - kjaftar á mér hver tuska og ég var sko vaknaður fyrir 7 í morgun (mömmu til mikillar hrellingar) og vildi smella mér til Gróu á leikstofuna!  Ég virðist nú samt enn svolítið eftir mig því aldrei þessu vant sofnaði ég aftur um 10 í morgun og er nú búinn að sofa í klukkutíma.  Úpps, mikilvægt að láta vita að þessi blæðing tengist ekki á nokkur hátt því að hvítblæðið mitt er komið af stað aftur - blóðprufurnar eru allavega ekkert skrítnar - líklega er þetta bara vandamál sem hefur með æðakerfið mitt að gera (sem er svolítið krumpað eftir allt sem ég hef gengið í gegnum), ofþrýsting á því, hugsanlega veirusýkingu í kokteil við það, viðkvæma slímhúð, og eitthvað fleira.  Nennum ekki að velta okkur of mikið upp úr því, en óneitanlega er kvíðinn fyrir blæðingunum búinn að taka sig upp aftur - mamma og pabbi voru loks farin að vera slakar gagnvart því að eitthvað þannig myndi gerast þar sem rúm 2 ár eru síðan blæddi síðast hjá mér (þegar ég næstum dó), en þau verða bara að lifa með því - ekkert annað í boði!!
Með þrumaúrheiðskíruloftikveðju,
Benjamín Nökkvi Hinn Peni

Reyni aftur!

Ætla að gera aðra tilraun með að setja inn glærur út fyrirlestrinum hennar mömmu.  Virðist hafa tekist held ég.  Allt ágætt að frétta af mér - hef þurft að fara aðeins í heimsóknir upp á spító, fékk sýkingu í typpalinginn þar sem ég er með svo mikla þrengingar í forhúðinni og kíkti skurðlæknirinn á mig - ætlum að prófa að bera á dúndursterakrem (þó mömmu sé fremur illa við þá tegund krema) og svo var ég settur á sýklalyf.  Kvefið er að lagast og ég hef farið á leikskólann alla vikunaSmile.  Ætla ekki að skrifa meir í bili þar sem við erum að fara að klára jólaskreytingar á heimilinu.

Með aðventukveðju,

Benjamín Nökkvi súperbolti


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Hinn íslenski súpermann!

Benjamín Nökkvi Björnsson
Benjamín Nökkvi Björnsson
Alvöru ofurhetja sem komist hefur í gegnum tvenn beinmergsskipti með hjálp einstakrar ástar á lífinu!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband