Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Útlagarnir komnir aftur!

Hi, how are you today?  Þetta var setningin sem mamma og pabbi heyrðu endalaust þegar þau voru í New York.  Mamma var alltaf að reyna að finna eitthvað kurteist svar á móti og var að verða sleip í að segja (mjög hratt!) "Fine, thank you, and how are you" - ástæðan fyrir að hún reyndi að svara hratt var sú að hún var búin að kveikja á perunni að líklegast var ekki beint ætlast til að maður svari heldur er þetta svona kurteisisfrasi sem er notaður í Bandaríkjunum, en þar sem mamma er kurteis kona æfði hún sig samt í að finna hentugt svarWink  Pabbi, aftur á móti, hefur farið nokkrum sinnum áður til US og honum fannst að maður ætti bara að svara "I'm all nice and dandy", en þannig var víst svarað þegar pabbi þvældist um Ameríku að skoða meðferðarheimili einhvern tíma á síðustu öld.  Mömmu fannst nú ekki hægt að nota svona sveitamállýsku (enda í New York - borg borganna) og var sannfærð um að svona Minnesotasvar myndi ekki henta á Fifth Avenue (fyrir þá sem ekki vita þá er Fimmta breiðgata svona tískuhúsagata, agalega mikið af merkilegum fötum (lesist merkjafötum!) og merkilegu starfsfólki (lesist snobbað!)).  Anyways, þá höfðum við það brjálæðislega gott hjá afa, ömmu og Rakel Ástrós, borðuðum páskaegg og annað gómsætt.  Ég er orðinn betri af kvefinu, varla hægt að heyra hósta, en Teklan mín fékk slæmt kvef í vikunni og hóstar ljótum hósta.  Fékk æðislegan Lightning McQeen bíl sem talar og hægt er að láta keyra í allskonar hlykki og skrans - fékk líka fótboltaskó sem ég var búinn að biðja um, Svamp Sveinsson boli og spil, og margt fleira.  Læt heyra í mér bráðlega aftur.

Með Dunkin Donut'skveðju,

Benjamín Nökkvi


Stutt og laggott!

Hæ everybody, ætla að smella inn smá fréttaskoti svona rétt fyrir páskana.  Er kominn með leiðindarhósta (líklega einhver kvefveira, enn og aftur!), hitamall, og smá glært hor í nös.  Mamma ákvað að best væri að láta hlusta mig í morgun þar sem betra er að taka á málunum fyrr en seinna til að hlutirnir verði ekki verri.  Gamli góði (neibb, slæmi) kvíðinn byrjaði að láta á sér kræla aftur í gærkvöldi (ekki hjá mér heldur mömmu og pabba) og mamma fékk hörmulega ömurlega martröð í nótt þar sem hana dreymdi að ég væri orðinn veikur aftur.  Bleeehh, ætlar þessu aldrei að sleppa?  Anyways, þá fórum við uppeftir í morgun og ég var hlustaður, en það jákvæða var að hljóðið í lungunum var sko ekkert svo slæmt þó svo að það væri töluvert slím.  Það voru líka teknar blóðprufur, og komu þær líka ágætlega út nema að blóðflögurnar mínar höfðu lækkað töluvert síðan síðast, en hjá mér hefur það verið algengt að þegar ég verð veikur þá lækka þær.  Við vitum að það gæti líka þýtt eitthvað annað en mamma ákvað að hún ætlar að reyna að láta það ekki hafa áhrif á sig, heldur trúa því að þetta sé bara sama mynstrið og við höfum áður séð þegar ég fæ einhverskonar sýkingu.  Ég verð líklega heima frá leikskólanum fram að páskafríi þannig að mitt frí er eiginlega bara byrjað, þó svo að það sé ekki spennandi að þurfa að vera lasinn heima.  Þau gömlu eru að skreppa í smá frí, en amma, afi og Rakel frænka ætla að passa okkur á meðan - eins og Teklan mín segir "oooohhhhh, ég get ekki beðið, ég hlakka svo til þegar mamma og pabbi fara"!!!  Ég er nú samt búinn að spyrja hvort ég megi ekki skreppa með til New York, en mamma og pabbi eru að standa við gamalt markmið sem þau settu sér þegar ég veiktist aftur fyrir 2 árum - ég er að hugsa um að leyfa þeim bara að skreppa og njóta þess að geta sofið, og sofið, og sofið, og.............  Læt heyra í mér aftur um og eftir páska.  Njótið páskanna og lífsins allsKissing

Með páskakveðju,

Benjamín Nökkvi páskaeggjakjamsari


Hinn íslenski súpermann!

Benjamín Nökkvi Björnsson
Benjamín Nökkvi Björnsson
Alvöru ofurhetja sem komist hefur í gegnum tvenn beinmergsskipti með hjálp einstakrar ástar á lífinu!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband