Leita í fréttum mbl.is

Loforð skulu standa (næstum því)!

Hæ elskurnar,

mamman lofaði færslu um síðustu helgi þar sem margir hafa verið að spyrjast fyrir um mig og líðan mína - takk fyrir það, yndislegt að finna að margir hafa fylgt mér í mörg ár og finnst þeir "eiga" pínu í mér, sem er sko alveg í góðu lagi Wink. En meginástæða bloggleysis hefur verið þvermóðska móður minnar að koma ekki nálægt neinu sem tengist Morgunblaðinu á neinn hátt (ástæða fyrir því sem óþarfi er að tíunda hér - þeir sem þekkja móður mína vita alveg hvernig hún er Whistling), en hún er að læra blessunin og ákvað að rétt væri að færa af mér fréttir.

Ég var sko að klára fyrsta skólaárið mitt (ÉG VEIT, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, sko!!), búinn að missa (taka úr mér) allavega 5 tennur, kominn með 2 nýjar (niðri sko!) og svo er ein óþekk barnatönn sem neitar að færa sig þó svo að fullorðinstönnin sé komin fyrir aftan hana - öhhhh, frekar pirrandi sko! Ég er orðinn ansi sleipur í lestri "les létt orð" eins og stóð í umsögninni minni og ég er sko frekar góður í stærðfræði (eins og hin krúttsystkin mín Cool). Anyhow, margt gerst á næstum heilu ári - ég vex kannski ekkert brjálæðislega vel en ég hef samt stækkað og er nú barasta orðinn 109 cm., en kílóin mættu nú alveg vera fleiri (svona 14.5 kg.) samt er ég sko hriiiiiikalega duglegur að borða. Eftir að við komum frá Washington skiluðu sér tugir blaðsíðna af rannsóknarniðurstöðum og var mikið lagt áherslu á að finna útúr hvað væri að gerast í lungunum mínum þar sem að tölvusneiðmyndin sýndi skugga og ýmislegt annað sem nauðsynlegt var að skoða nánar. Ég hef líka verið að kljást við blæðingar úr ristli, en það hafa fundist (og verið teknir) "góðkynja separ" (I know, svona "læknenska"!!!), svo kom einhver skrítin blæðing (ekki úr æðagúlunum mínum þó) í febrúar minnir mig, en þar sem góði meltingarfærasérfræðingurinn minn hefur verið að skottast til útlanda að vinna (og er nú alfarinn sem okkur finnst sorglegt af því hann er sko frábær, en ég sagði nú bara við mömmu að "nú fær hann sko meiri laun mamma og getur keypt sér meira af kökum"Grin) þá leið nokkuð langur tími þar til hægt væri að spegla mig og var því ekki hægt að finna blæðingarstaðinn. Verðum bara að halda áfram að fylgjast með þessu.

Well, aðalvandinn þessa dagana eru nú lungun mín - en mamma og pabbi hafa tekið eftir því síðan í lok hausts hvað ég var alltaf að hósta mikið þegar ég reyndi á mig, og hefur það bara versnað og versnað, nú er það eiginlega þannig að ég fer meira að segja að hósta þegar ég hlæ (sem ég geri sko mjög mikið af!!) og ég er fljótur að blána á vörunum þegar mig langar að leika við vini mína, spila fótbolta, og já, bara gera allt sem "næstum sjöára" grallarastrákar vilja gera. Loksins var tekin sú ákvörðun að ég myndi fara í opna aðgerð þar sem skorið er pínu stykki úr lunganu mínu og það sent til skoðunar til að sjá hvað er að hrá mig. Það var nefnilega þannig (því mamma mín er þverari en andsk...., úpps, svona má maður ekki segjaHalo) að vegna þess að á Íslandi er enginn barna-lungnasérfræðingur þá var mér vísað til fullorðins-lungnasérfræðings (mjööög flottur maður sko!) og hann lét taka lungnamynd sem sýndi að það er eitthvað að lungunum mínum - semsagt er þau eitthvað lasin og það verður að komast að því eins fljótt og hægt er hvað það er til að hægt sé að sjá hvort ekki er hægt að lækna það (nei, það er ekkert sem tengist krabbalabba (innskot frá mömmunni)). Lungnalæknirinn lét mig labba í tröppum og allt, með svona súrefnismettunarmæli á puttanum og fannst ég nú frekar magnaður sko þegar ég datt niður í 80% súrefnismettun við að labba 2 hæðir, og ég hvorki hvæsti, dæsti, né blés eins og hvalur, heldur var bara með fjólubláar varir og smá fjólubláan nebba! Hann sagði nú bara: "rosalega er þetta flottur strákur, ótrúlegt hvað hann hefur aðlagast þessu ástandi vel" - já, og ekki hvað, maður er nú svalastur Cool).

Nóg í bili, lofa að láta vita þegar við vitum eitthvað meira um hvað er að gerast með lungun mín. Á meðan ætla ég að halda áfram að njóta lífsins í botn, horfa á Svamp Sveinsson og Patrick (hrikalega fyndinn sko!), horfa á, spila, og leika mér í Star Wars, spila fótbolta þegar ég get, og vera sami grallaraspóinn og ég hef alltaf verið Wink.

Með grallaraspóakveðju,

Benjamín Nökkvi HINN OFURSVALI


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Takk fyrir þetta Benjamíns-mamma. Það eru bara kjarkmömmur sem láta sig hafa það að blogga á Davíðssíðunum. Ég ákvað að vera kyrr, það voru mín mótmæli haha

Mikið ótrúlega ertu flottur strákur !! Alveg heljarinnar jaxl. Ég veit nú ekki hvað þú varst gamall þegar ég byrjaði að fylgjast með þér og biðja fyrir þér. En að þú skulir núna vera búinn í fyrsta bekk í skóla finnst mér alveg brjálað, það er svoo flott.

Vonandi finnst fljótt hvað er að hrekkja þig í lungunum og veistu, læknirinn hefur þetta alveg rétt. Þú ert algjör snillingur.

Knús á þig fallegi strákur og mikið er ég fegin að sjá færslu.

milljón svona

Ragnheiður , 18.6.2010 kl. 19:38

2 identicon

Gaman að heyra þig blogga aftur. Ég skil þig samt vel, hef bara fylgst með á fésinu í staðinn. 

 Leiðinlegt að heyra þetta vesen með lungun.  Ég er náttúrulega enginn sérfræðingur en sumir barnahjartalæknar eru með börn sem eru með einhverja lungnasjúkdóma. Man bara að þegar Ásgeir fór í hjartaþræðingu árið 2005, þá var Gulli líka með strák sem var með einhver lungnavandamál (þekki því miður ekki alveg hvernig vandamál það voru eða hvort þau tengdust hjartanu eitthvað líka).  Ásgeir hefur einnig verið sendur í lungnaskönnun á næstum því hverju ári.  Allavega, ef það finnst ekkert hjá fullorðinslungnalækni þá má alltaf athuga hinn möguleikann (barnahjartalækni).  En eins og ég segi, ég er ekki viss hvort það dugi, en það sakar ekki að tékka á því.  Gulli barnahjartalæknirinn hans Ásgeirs er alveg frábær.  Bara svona ef þú vilt athuga málið.

Kveðja Andrea. 

Andrea og strákarnir (IP-tala skráð) 19.6.2010 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hinn íslenski súpermann!

Benjamín Nökkvi Björnsson
Benjamín Nökkvi Björnsson
Alvöru ofurhetja sem komist hefur í gegnum tvenn beinmergsskipti með hjálp einstakrar ástar á lífinu!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband