Leita í fréttum mbl.is

Live and kicking in Sweden!

Hæ hó krúsulúsurnar mínar!  Pjúff, hvað við erum fegin að það er kominn sunnudagur og rannsóknartörnin að baki.  Lentum hér í Stokkhólmi eftir tíðindalítið flug, en við krílin 3 stóðum okkur frábærlega vel og foreldrar okkar geta ekki annað en verið upp með sér yfir þessum dásamlega meðfærilegu börnum sem þau eiga.  Við dunduðum okkur bara í fluginu, ég sofnaði smá, Hrafnhildur söng alla leiðina og Nikulás spurði mömmu reglulega hvað margar mínútur væru eftir af fluginu - enginn sem grét eða reifst og má það heita hálfgert afrek þar sem við vorum búin að vera vakandi frá því um kl.04 um morguninn.  Tókum svo leigara í Hamborgarahúsið, hentum af okkur töskunum og smelltum okkur í Pulsen til að kaupa smá mat og aðrar nauðsynjarvörur.  Á miðvikudaginn fór ég svo upp á spítala fyrir kl.9, við tók augnskoðun sem tók ca. klukkutíma með því að fá hræðilega dropa í augun, eftir það fór ég upp á deild þar sem við hittum læknana mína og ég var hlustaður og skoðaður, eftir það fór ég til hormónalæknis, og að lokum var ég sendur í hjarta og lungnaröntgen.  Stanslaust prógramm til kl.14.30 - þeir sem ekki þekkja til átta sig kannski ekki á hvað þetta er mikil hlaup, en til að fara í þessar rannsóknir þarf að fara laaaaanga ganga fram og tilbaka, upp og niður hæðir, og aftur fram og tilbaka langa ganga.  Á fimmtudag fór ég svo í hjartalínurit, handaröntgen (til að athuga hvernig vöxturinn er í beinunum mínum eða eitthvað þannig - hvernig ég vex sko!), svo fór ég aftur upp á deild og fékk emlaplástur til að hægt væri að taka blóðprufur og setja upp nál fyrir svæfinguna, svo voru teknar prufurnar (10 glös - ekki að grínast!), svo fór ég að hitta svæfingarlækninn og hún var greinilega mjög þreytt þar sem hún var alltaf að klifa á því þegar tölvan fór ekki í gang hjá henni ("jag är så trött"!!!).  Á föstudeginum var ég aftur mættur fyrir kl.9, fór til lungnalæknis, hitti sjúkraþjálfa sem átti að kenna okkur á nýja úðunarvél sem ég þarf að fá fyrir lungun mín, var svo skellt upp á deild í bað, fékk róandi og brunuðum af stað niður í svæfingu fyrir kl.11.  Í millitíðinni höfðu læknarnir verið að hringja sín á milli en svæfingalæknarnir vildu vita hvort það þyrfti endilega að svæfa mig þar sem lungnamyndatakan sýndi að ég var með smá lungnabólgu og ekki svo sniðugt að vera að svæfa þá.  Krabbameinslæknirinn hringdi þá í lungnalækninn sem hélt að það yrði allt í lagi, og svo varð úr.  Búið var að láta mömmu og pabba vita að ég gæti orðið rosa slappur eftir "bronchoskópíuna" (sprautað vatni í lungun og þau "ryksuguð" og síðan tekið vefjasýni úr lungunum) og að ég þyrfti að sofa eina nótt á spítalanum.  Svæfingin gekk vel, beinmergurinn rann ljúflega og lungnavesenið gekk eins og í sögu en hrikalega mikil drulla var í lungunum og tóku þeir grilljón veirusýni.  Ég svaf lengi eftir svæfinguna en vaknaði síðan svakalega hress, fór upp á deild og var þar í stuði, þeyttist um allt á hjóli (sem var eitt það besta sem hægt er að gera eftir svona lungnaskoðun, þ.e. að hreyfa sig til að ná upp meira slími).  Ég fékk engan hita um kvöldið eins og búist var við, sofnaði svo um 23.30 og við mamma vöknuðum svo frekar hress í gærmorgun.  Fékk að útskrifast fyrir kl.11 og við fjölskyldan skelltum okkur þá niður í Hamborgarahúsið þar sem við slöppuðum af (loksins!!) það sem eftir var dagsins.  Í dag fórum við svo í svona tilraunagarð (Tom Titt) þar sem voru um og yfir 400 mismunandi uppfinningar og tilraunir sem hægt var að skoða og reyna við - ógeðslega gaman, sko!  Á morgun er það Gröna Lund (tívolí), á þriðjudaginn þurfum við að hitta lækninn og fá einhverjar niðurstöður úr mergsýninu og lungnarannsókninni, á miðvikudag langar okkur að skella okku í Astrid Lindgrens Värld, sem er í 3 klukkutíma fjarlægð héðan, en þar ætlum við að gista og skella okkur svo í dýragarð (Kolmården) á fimmtudag, pakka svo á föstudag, og svo er það "home, sweet home" á laugardag.  Ég veit, smá maraþonskrif í restina, en ritarinn er lúin og ákvað að smella restinni með í stikkorðastíl.

Með Kanelbullekveðju,

Benjamín Nökkvi SúperdúperHero


Hæ hó Jibbíjei og Jibbííjei, það er kominn áttandi júní!!!

Hehehehehehehhe, ég er sko geggjaður húmoristi, er búinn að syngja þetta í allan dag og finnst ég brjálæðislega fyndinnLoL  Annars er það að frétta af mér að ég hef verið hress undanfarið og hef verið að styrkjast með hverjum deginum.  En DAMN, er kominn með eitthvað fja..... kvef og korrar töluvert í mér, hósta frekar mikið og var svolítið þreyttur seinnipartinn í dag sem er fremur óvanalegt.  Æi, vonandi er þetta bara venjulegt kvef sem ég puðra á og verð orðinn góður af eftir nokkra daga - ansans kvíðinn lætur nú samt strax á sér kræla hjá foreldrum mínum, líklega mun það minnka með árunum (vonandi!).  Nú eru liðin 2 ár frá því að ég fór í seinni mergskiptin (7 júní 2005), alveg hreint með ólíkindum að svona langur tími sé liðinn og enn ótrúlegra að við séum búin að brasa í heimi krabbameins, lækna, sjúkrahúsa, osfrv. í bráðum 4 ár!!!  Vorum að kíkja á myndir áðan hjá ömmu frá því að ég fór í fyrri mergskiptin og ótrúlegt að sjá Tekluna mína með snuddu í munninum, ekki einusinni 3 ára (en hún varð 6 ára þann 5 júní) og Nikulásinn minn bara 5 1/2 árs (verður 9 ára í haust), og ég bara 8 mánaða (verð sko 4 ára þann 28 júlí!!!).  Ótrúlegt alveg hreint hvað margt hefur gerst á þessum tíma - Unbefuc.......leavable!!  Nú styttist í Svíþjóðarferðina (3 júlí), mamma kom heim frá Svíþjóð á föstudaginn var (er nú formlega orðinn doktórsnemi við "The department of Women and Child Health" við Karolínska Institutet, í Svíþjóð - jamm, hún er bara stolt af því og má alveg vera það!) og nær bara að vera heima í rúmar 2 vikur þar til við förum aftur.  Teklan mín stakk af til Ísafjarðar, fór með ömmu, afa og Rakel Ástrós, og er bara að hugsa um að vera þar í sumar nema hún vill gjarnan koma með til Svíþjóðar svo hún geti farið í tívolí og fleira stuð, en gæti örugglega hugsað sér að smella sér svo aftur á Ísó, en við erum nú að hugsa um að fá að halda henni heima eitthvað í sumar.  Nikulás er í fótboltaskólanum hjá Fylkir og er lukkulegur með það enda fótbolti líf hans og yndi.  Ég er líka orðinn svalur fótboltagæi og spilaði t.d. fótbolta við Heiðar afa næstum allan daginn sem við héldum upp á afmælið hennar Teklu - skildi samt ekki afhverju afi neitaði að skutla sér á magann í grasið!!  TÚDDILÚÚ í bili.

Með "og það var stöngin inn!!!!!"-kveðju,

Benjamín Nökkvi FYLKIR 


Góðir hlutir gerast hægt!

Hejsan svejsan! Maður þarf að skella sér í sænskuna af og til til að rifja hana upp, sérstaklega þegar ferð til Svíþjóðar fer að nálgast.  Við fengum að vita í vikunni að búið er að skipuleggja eftirlitsheimsókn fyrir mig og förum við 3 júlí.  Prógrammið er stíft í 3 daga - heilalínurit, hjartalínurit, lööööng augnskoðun, heimsókn til hormónalæknis, blóðprufur of course, og síðast beinmergstaka og vefjasýnataka úr lungunum.  Við báðum um að sleppa tannlækninum, þar sem við erum með fínan tannlækni hér heima, og eins nennum við ekki að hitta félagsráðgjafann þar sem við búum hér á Íslandi en ekki í Svíþjóð og markmiðið með að hitta félagsráðgjafann er fyrst og fremst hugsað í tengslum við félagslega aðstoð.  Annars værum við alveg til í að hitta hann og hana (þau eru í teymi) yfir kaffibolla og spjalla, því þau hafa reynst mömmu og pabba vel í bæði skiptin og tekið upp mál á spítalanum í Svíþjóð sem mömmu fannst ganga út yfir öll mörk, en með því að taka það upp með deildunum var það líka lagað - sem er frábært!  Semsagt, þar sem þessi ferð lendir á sumarfrístímanum erum við sko að spá í að fara öll saman!!  Í fyrsta sinn í tvö ár sem við færum öll saman til Svíþjóðar og mikið væri nú gaman ef niðurstöðurnar væru góðar og við gætum notið þess að fara saman í tívolí og kannski Astrid Lindgren garðinn (en ég hef aldrei komið í hann bara Nikulás og Tekla).  Við ætlum semsagt að lengja ferðina smá og gera smá frí úr henni - heitasta óskin er að sjálfsögðu sú að allt líti vel út svo við getum öll upplifað þessa ferð sem hálfgerða sigurferð þar sem þetta er stór áfangi í mínu veikindaferli.  Málið er nefnilega það að þó svo að við höngum ekki í neinum tímaramma þá er samt gríðarlega stór áfangi fyrir mig að hvítblæðið hafi ekki tekið sig upp aftur, og ef eitt ár bætist við þá gefur það okkur auknar vonir um framtíðarbata.  Pjúff, þvílík langloka!  Anyways, þá er niðurgangurinn loks að láta undan síga eftir næstum 2 vikna stanslausan rennikúk (pardon my French!) og nú get ég vonandi farið að bæta aðeins á mig aftur, en ég léttist allt of mikið þannig að 12 kílóa takmarkið stóð ekki nema í 1 dagShocking  Skítt með það (he, he, skítt sko - þið vitið, niðurgangur!), ég er sprækur þessa dagana og ég eeeeeelska lífið og allt sem það hefur upp á að bjóða.  Njótum þess að vera til og ég tek aðra mér til fyrirmyndar þegar ég minni ykkur á kæru lesendur að sýna og segja þeim sem þið ferðist með að ykkur þyki vænt um þá og verið dugleg að kyssast og knúsast, það gefur lífinu gildiHalo

Með væntumþykjufyrirlífinukveðju,

Benjamín Nökkvi SúperOfur!


Kominn á tvö hjól, sko!!

Hæ, hó, hí, verð að fá að deila með ykkur skemmtilegri framför hjá mér sem okkur fjölskyldunni finnst dásamleg - Ég er farinn að hjóla á tvíhjóli!!!  Ég notast að sjálfsögðu við hjálpardekk, en fyrir lítinn kall sem fór ekki að ganga fyrr en fyrir rúmu ári síðan þá hlýtur þetta að vera merki um aukinn styrk í fótunum mínum og aukið úthald og það er bara geggjað!  Afi Hörður bætti gamla tvíhjólið hans Nikulásar og á tveimur dögum lærði ég að hjóla á því, frá því að þurfa hjálp með pedalana og koma mér af stað í það að þeysast hring eftir hring (inni - úr holinu í stofuna og gegnum eldhúsið).  Gersamlega frábært alveg, og mömmu og pabba finnst æði að heyra mig segja "ég fer svooooo hratt!!". Ég tók upp á því að fá þvílíka magapest í fyrrinótt, ældi og ældi þannig að mömmu stóð sko ekki á sama, og þegar ég var búinn að gubba ca.20 sinnum sofnaði ég úrvinda, vaknaði svo aðeins hressari en hafði og hef litla lyst.  Ég fór því ekkert í leikskólann í gær og í dag, en amma passaði mig í dag svo að mamma kæmist í vinnuna.  Er samt að hressast og farinn að stríða eins og ég er vanur þannig að líklega fer ég á leikskólann á föstudaginn.  Ég er búinn að tala við pabba nokkrum sinnum í gegnum tölvuna en hann er að fíla Indland og lenti í afmælisveislu í gær þar sem voru pizzur og hamborgarar án kjöts!  Held að hann sé ekki búinn að borða neitt kjöt síðan hann kom til Indlands á sunnudaginn, og finnst það bara gott mál.  Ég var í blóðprufu á mánudaginn og hún leit vel út, líklega er ég síðan á leiðinni út til Svíþjóðar um miðjan júní - er að fara í 2 ára skoðunina og við krossum fingur fyrir að það komi vel út, ekki satt!!  Er að fara í smá afmæliskvöldmat til Gumma afa og Öllu, en mamman á afmæli í dag, 35 ára!!!  En yndisleg móðursystir mín sagði mömmu að slaka á aldurskomplexunum því í dag er 35 hinn nýi 25 ára aldur!!  Það má lengi telja sér trú um það og mamma ætlar bara að fíiiiiila það að komast nær fertugsaldrinum og hana nú!

Með framfarakveðju,

Benjamín Nökkvi hinn Tvíhjólandi


Hvað get ég sagt?

Ekkert mér til afsökunar, bara mikið að gera hjá öllum og ekki fer það neitt minnkandi fyrir sumarfríCrying  Pabbi að smella sér til Indlands i vinnuferð eftir viku, ég fer mögulega til Svíþjóðar í 2 ára eftirlit nokkrum dögum eftir að hann kemur heim, svo er fótboltamót á Laugarvatni (Nikulás), Hrafnhildur á afmæli nokkrum dögum seinna (6 ára), NOPHO ráðstefna sem mömmu langar að kíkja á og samstarfsmaður hennar frá Svíþjóð kemur til á ráðstefnuna og til að funda með henni, mamma fer fyrir inntökunefnd í Svíþjóð örfáum dögum seinna, og svo er bara nánast skollið á sumarfrí.  PJÚFFF, ég verð bara sveittur af því að hugsa um þetta!!  Annars er ágætt að frétta af mér, ég varð kvefaður rétt áður en mamma og pabba fóru til New York, var góður í nokkra daga og kvefaðist svo aftur.  Við höldum að þetta hafi verið einhver leiðindarveira sem hafi stungið sér í kroppinn minn þar sem ég var svona lengi að jafna mig, fékk líka mikinn niðurgang og húðútbrot þegar kvefið var að lagast en það hefur gerst áður þegar ég hef fengið veirukvefpest.  Ég er ekki alveg að skilja þetta sumar, það kemur aldrei nótt!!  Akkúrat núna er ég niðri í kjallara með pabba og Nikulási í fótbolta og Teklan mín er heima hjá vinkonu sinni í grillpylsum (búin að vera þar í allan dag og smellti sér bara með þeirri fjölskyldu í hesthús - algjör flakkari þessi systir mín).  Ég er alltaf sami stuðboltinn og þroskast með hverjum deginum, lungun mín eru enn smá viðkvæm og maginn líka stundum, en annars líður mér ansi vel og finnst lífið algjörlega geggjað.  Skal reyna að vera duglegri að koma með fréttir af mérHalo

Með frestunaráráttukveðju,

Benjamín Nökkvi kjallarafótboltagæi


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hinn íslenski súpermann!

Benjamín Nökkvi Björnsson
Benjamín Nökkvi Björnsson
Alvöru ofurhetja sem komist hefur í gegnum tvenn beinmergsskipti með hjálp einstakrar ástar á lífinu!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband