Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
25.10.2008 | 17:42
Grein í Fréttablaðinu í dag!
Hæ allir, langt síðan ég hef látið heyra í mér en ég verð að segja að það hefur gengið ansi vel hjá mér undanfarið. Fyrir utan prumpuNoroveiru sem stakk sér niður á heimilið síðasta fimmtudag, og ég byrjaði - BLEHH! Var rosalega slappur og ofboðslega illt í maganum, fékk svo mikinn niðurgang og er nú ennþá með smá, sko!, en ég er alveg farinn að borða og segi við þau gömlu að ég sé nú ekkert veikur lengur heldur bara hinir á heimilinu (fyrir utan Nikulás). Hrafnhildur Tekla kastaði svakalega upp í gærkvöldi og fram á nótt, svo var pabbinn næstur í röðinni, og mamman er "slöpp" í maganum. Ég ætla að reyna að setja inn link á greinina sem kom í Fréttablaðinu í morgun, okkur fannst hún virkilega fín og vel skrifuð. Til lukku Þórgunnur! http://vefblod.visir.is/index.php?s=2500&p=64126
Með prumpandikveðju,
Benjamín Nökkvi Fimmárakúkaprumpbrandarakarl
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.10.2008 | 20:30
Nei, hættiði nú alveg - nú er pabbinn flúinn!!
Long time no see! Hjá mér gengur nokkuð vel, óvenjuvel ef maður þorir að segja það upphátt /,9,13). Ég hef getað farið í leikskólann næstum hvern dag í septembermánuði - fyrir utan einn dag þegar ég var í svæfingu og svo smá skrepp upp á spító. Kom reyndar uppá að ég er orðinn rosalega lágur í járni og þarafleiðandi blóði (hemoglóbín 89) og farið af stað ferli til að reyna að byggja upp járnbúskapinn og næringuna almennt - hún er semsagt líka léleg (öðru nafni næringarskortur) þrátt fyrir að ég borði eins og hestur og líka fjölbreytt. Komið í gang plan um hvernig er hægt að þyngja mig og næra betur og nú er bara að fara af stað og vona að þetta gangi nú upp og ekki þurfi að koma til þess það þurfi að setja inn æðalegg og gefa mér næringu í æð. En það er nú lokaúrræðið okkar og langur vegur þangað og nokkuð hægt að gera áður en við lendum þar. Annars er ég byrjaður í elsta hóp í leikskólanum og þvílíkar framfarir hjá mér í að teikna og skrifa stafina - mér hafði nefnilega þótt það svo leiðinlegt af því að mér finnst svo erfitt að halda á blýant, en nú finnst mér það gaman og æfingin skapar svo sannarlega meistarann. Ég er búinn að eignast fullt af nýjum vinum (sem eru sko líka 5 ára eins og ég) og ég er nú ófeiminn að hringja í þá og bjóða þeim heim eða fara til þerra í heimsókn að leika. Er búinn að læra að hringja sjálfur og líka meira að segja skeina mér!! Pabbinn er semsagt í viðskiptaferð í Indlandi en það er líka kúl að fá að vera ein (öll systkinin) með mömmsunni.
Með Flakkáforeldrumkveðju,
Benjamín Nökkvi Glannagæi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tenglar
Gamla síðan mín
www.medferd.com/Benjamin
- Benjamín (gamla síðan) Þarna hef ég bloggað síðan haust 2003
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar